DESIGN
Vörur-Products
18.06.2010
VÆNGJA
Við fórum saman í geggjuðu veðri í Elliðárdal með myndavélina að vopni og Jóhönnu Gils tilbúna með pósurnar!
Úr varð svona líka sæt taka af nýju kjólunum okkar sem heita Vængja.
Þeir fást í nokkrum útgáfum ss satín-vængja, blúndu-vængja og bómullar-vængja.
Það er skurður í sniðinu í boga á hlið kjólsins sem gerir það að verkum að hann blekkir augað og virkar mjög grennandi. Hver vill það ekki? ;)
05.06.2010
SUMARCOLLECTION-LIMITED EDITION
Við fórum í smá myndatöku í gær með Jóhönnu Gils í sumarblíðu og öskufalli af sumarvörum sem koma í verslunina þriðjudaginn 08.06.2010
ATH vörurnar verða fáanlegar í MJÖG takmörkuðu upplagi!
17.05.2010
FARANDVERSLUN VOLCANO DESIGN FER TIL AKUREYRAR!!
Volcano Design opnar farandverslun dagana 20-21 mai við Kjarnagötu í sama húsi og Bónus.
Opið verður frá 12:00 20:00 báða dagana!
30.04.2010
ELDGOS-ASKA OG NÝJAR VÖRUR
Við fórum í myndatöku til Maríu sys og smelltum myndum af nýju módeli: Jóhönnu Gils ofurskvísu!
Hægt er að sjá myndir af eldri vörum, fleiri tegundum af leggings og nýjum kjól sem eitir Aska með snæuglu prenti!
Svo er bara um að gera að kíkja í verslunina og skoða úrvalið!
Munið að það er einnig hægt að fylgjast með okkur á facebook! :)
07.04.2010
GÓUGLEÐI
Við héldum Góugleði til að fagna opnun Volcano Design á Laugavegi 40. Á boðstólnum var unaðslegt heitt súkkulaði, dýrindis bleikar muffur og að sjálfsögðu góu karamellur! A Band on Stage spilaði nokkur vel valin lög meðan gestirnir skoðuðu verslunina og það nýjasta sem í boði er! :)
21.04.2010
LEGGJABRJÓTUR
Nýjar geggjað þægilegar og cool leggingsbuxur úr þrem mismunandi efnasamsetningum, margar tegundir til!
Þær eru háar í mittið með 10cm breiðum, tvöföldum lista að ofan sem heldur vel að. Extra síðar og örlítið útvíðar að neðan svo þær krumpast neðst og eru ferlega klæðilegar, grennandi og góðar!
Verð 14900.-
VOLCANO design
(english below)
Volcano Design er íslenskt hönnunarfyrirtæki sem býður upp á einfaldar, klæðilegar og klassískar gæða vörur í formi fatnaðar og aukahluta fyrir konur. Sniðin eru hönnuð til að auka fegurð kvenlíkamans og fela erfiðleika svæði.
Hönnuðurinn sækir innblástur sinn til forma kvenlíkamans, fornra sniða og villtrar náttúru og dýralífs Íslands. Volcano Design er stolt af því að handvinna allar vörur sínar á vinnustofu sinni á Íslandi, sem er staðsett nálægt versluninni svo smávægilegar breytingar eru auðsóttar til að þjónusta hvern kúnna eftir þörfum hvers og eins.
Verslunin Volcano Icelandic Design er staðsett á Laugavegi 40 þar sem hægt er að versla vörur Volcano Design sem og annarra íslenskra hönnuða sem eiga það allir sameiginlegt að framleiða vörur sínar innanlands.
Volcano Design is an Icelandic fashion design brand that offers simple, fetching, stylish yet classic quality clothing and accessories for women. The cuts are designed to enhance the beauty of the female figure and hide troubled areas.
The designer derives her inspiration from the female form as well as Icelandic wild- life such as the Fox, the Great Auk and the Owl. The brand prides itself on hand-making every single piece, in their workshop in Iceland, close to the boutique, so that small adjustments can easily be made to the garments to cater to the clients individual needs.
The boutique, Volcano Icelandic Design, is located on the main shopping street in Reykjavík, Laugavegur 40, where the clothing is available for purchase. Volcano also offers design pieces by several other Up and Coming Icelandic designers, who all design and produce their goods in Iceland.
KATLA hreidarsdottir
Ég er útskrifuð með BA í innanhúsarkitekt frá Istituto Europeo di Design í Barcelona. Ég nam Visual Merchandising á undan því í Teko, Herning, Danmörku í 1 1/2 ár, og þar áður tók ég stúdentsgráðuna úr Fjölbraut í Garðabæ af listnámsbraut með sérsvið í textílhönnun.
Ég er alin upp í mjög svo listrænni fjölskyldu svo hönnun og listir hafa fylgt mér frá unga aldri.
Ég reyni að skapa flíkur sem eru klæðilegar á alvöru konur, konur með fjölskyldu, börn, vinnu og svo framvegis. Flíkur sem eru þægilegar og gagnlegar úr vönduðum efnum sem endast vel og auka kynþokkann.
I have a BA degree as an interior designer from Istituto Europeo do Design, Barcelona. I studied Visual Merchandising in Teko, Herning Denmark and my college degree I got from Fjölbraut in Garðabær with emphasis on fashion and textile design.
I am brought up in a very artistic family so design and arts were an evident outcome for me I believe.
I try to create pieces that are becoming on real women, women with family, children, empowering jobs etc. Clothing that is both comfortable and useful made of quality fabrics that last and emphasize the femininity.
KLÚBBAKVÖLD
Volcano Design býður nú kúnnum sínum upp á einstaka verslunar upplifun fyrir litla hópa allt að 15 manns. Hönnuðurinn kynnir vörurnar fyrir hópnum, útskýrir snið, efni og notagildi hvers hlutar sem og aðstoðar hvern og einn við að finna snið og liti sem best klæða viðkomandi.
Á meðan er verslunin er lokuð almenningi og hópurinn getur fyrst skoðað vöruúrvalið, því næst slakað á í setustofunni við kertaljós og rólega tónlist og notið veitinga og að lokum mátað í friði og ró. Volcano býður upp á kaffi og te, en hópnum er einnig velkomið að panta frá nálægum veisluþjónustum eða koma með veitingar að heiman. Klúbbakvöldin henta einstaklega vel fyrir saumaklúbba eða litla vinnustaði.
Vinsamlega pantið með tveggja daga fyrirvara.
Volcano Design is now offering an exclusive and unique private shopping experience for small groups of up to 15 people. The designer guides the group through the range, describing the garments, the patterns, fabrics, style and design details, as well as personally assisting each client to find the cut that best suits their figure.
The boutique is exclusively open for the group to enjoy browsing through the pieces initially, thereafter relaxing with refreshments in a candle- lit lounge and chill out space and finally enjoying trying on various items of their choice in their own time. Volcano Design offers complementary refreshments and the group are welcome to order meals from convenient near- by catering services and restaurants.
Please reserve with two day notice.
NAME:
Hafa Samband- ContactLaugavegur 40101 ReykjavíkBoutique tel: +354 588 0100 Katla, Head Designer +354 865 9059 Gunnar, CEO +354 891 8808E-MAIL: katlahreidars_gmail.comOpnunartími verslunarinnar er: Boutique opening hours: Mánudag - föstudag (mon-fri) 11:00 -18:00Laugardag (sat) 12:00 -16:00
Hafa Samband- Contact
Laugavegur 40
101 Reykjavík
Boutique tel: +354 588 0100
Katla, Head Designer +354 865 9059
Gunnar, CEO +354 891 8808
E-MAIL: katlahreidars_gmail.com
Opnunartími verslunarinnar er:
Boutique opening hours:
Mánudag - föstudag (mon-fri) 11:00 -18:00
Laugardag (sat) 12:00 -16:00
EMAIL:
MESSAGE:
Verold Mortu Mariu Pressan 4 mars 2010
Myndir og grein um opnun Volcano Design Laugavegi 5
Myndir fra opnun Volcano Design Laugavegi 5
Volcano Design í blöðunum!Hér til hliðar eru viðtöl og úrklippur úr hinum og þessum blöðum.Opnun Volcano Design á Laugavegi 40 rataði í nokkur bloð, skemmtilegar greinar og myndir. Hægt er að sjá smá synishorn hér til hliðar og linkar á greinarnar eru hér ad neðan.Pressanvisir.isOn the side are various photos and cutouts from the press.
Volcano Design í blöðunum!
Hér til hliðar eru viðtöl og úrklippur úr hinum og þessum blöðum.
Opnun Volcano Design á Laugavegi 40 rataði í nokkur bloð, skemmtilegar greinar og myndir. Hægt er að sjá smá synishorn hér til hliðar og linkar á greinarnar eru hér ad neðan.
Pressan
visir.is
On the side are various photos and cutouts from the press.
Volcano Design selur íslenska hönnun í formi fatnaðar og aukahluta fyrir sjálfstæðar, skapandi og töff konur á öllum aldri!
Clothing and accessories for independent, creative and strong women...
Volcano Design 2008 Laugavegur 40, 101 Reykjavík